24júlí

Ţriđja áriđ ađ bresta á !!!!

Jæja elskulegu bekkjarfélagar þá er þriðja og næst síðasta árið okkar að bresta á í skólanum !!! Það er ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða.
Eins og þið munið ætlum við að vera rosa dugleg að glósa og vinna jafn óðum í vetur, sérstaklega í vefrænum sjúkdómum þar sem elskan hann Ingvar Teits er að kenna það !!! Og þegar við komum heim úr vettvangsnáminu förum við beint í próf hjá honum. Þannig að það er eins gott að vera skipulagður þessa önn !!! Eru ekki allir sammála ???? ;-) ;-)

Svo er líka mjög mikilvægt að skipuleggja fjáröflun fyrir bekkinn svo við komumst nú örugglega í útskriftarfer vorði 2011 !!! Kannski nauðsynlegt að halda einn bekkjardag til að skipuleggja þetta allt ;-) ??

Hlakka til að hitta ykkur í skólanum, við fáum eina nýja stelpu í bekkinn okkar í vetur og við að sjálfsögðu tökum jafn vel á móti henni og við tókum á móti Thelmu í fyrra. Við gerðum það með glans er það ekki Thelma ??

Knús Sibba :-)
24. júlí 2009 klukkan 12:38
Iđjurnar á 2.ári
3 athugasemdir
03mars

Árshátíđ!!!

Jæja nú er árshátíðin að skella á... vúhú. Hefði reyndar viljað sjá betri mætingu,..... EENN treysti á 100% mætingu að ári!!??

En við sem ætlum að fara.... eigum við eitthvað að hittast eða hvað finnst ykkur?? og kannski... hverjir eru að fara nákvæmlega??

Látið í ykkur heyra..

 

Er ekki spurning um að taka PROMIÐ með stæl?? :) hehe
Valgý ofurspennta!!!prom

03. mars 2009 klukkan 22:01
Iđjurnar á 2.ári
2 athugasemdir
05febrúar

Partý á Laugardaginn???

Djamm á laugardaginn....koma svo allar sem einn!!!!... Nánar
05. febrúar 2009 klukkan 22:33
Iđjurnar á 2.ári
4 athugasemdir
30janúar

Takk fyrir frábćran dag :-)

Það var ekkert smá gaman hjá okkur í gær Laughing. Svo gaman að strax er komin upp hugmynd af því að gera spilakvöld að mánaðarlegum viðburði....vonum að það gangi betur en út að borða einu sinni í mánuði dæmið....eða út að labba saman dæmið í fyrra Laughing.
Í gær voru líka ræddar aðeins fjáröflunar leiðir fyrir útskriftarferðina okkar og við þurfum endilega að ræða það betur og ákveða eitthvað í því máli, svo hægt sé að byrja á öllum sniðugu hugmyndunum sem komu fram Foot in mouth.

En...ég er búin að setja myndir frá gærdeginum inn á myndasíðuna hennar Ernu sem hún eftirlét okkur þessi elska Kiss. Endilega setjið ykkar myndir þar inn svo við hin fáum að njótaLaughing.

Knúsilí knús, Sibba.
30. janúar 2009 klukkan 22:19
Iđjurnar á 2.ári
1 athugasemd
26janúar

Samverudagurinn mikli

Fimmtudaginn 29. janúar ætlum við að eiga stórkostlegan samveru dag!!
Við ætlum að byrja á því að fara á BauTann og borða saman í hádeginu (1000 kr. tilboðið). Eftir mat ætlum við að labba á Listasafnið og skoða stórmerkilega sýningu sem ég veit ekki meira um. En Thelma sem er útskrifuð af listnámsbraut VMA ætlar að kynna þetta allt saman fyrir okkur. Frítt er inn á Listasafnið :-) Þegar við erum búin að fullmetta okkur af listisemdum Listasafnsins meiga allir fara heim til sín í smá stund.
Klukkan 20.00 um kvöldið ætlum við svo að hittast heima hjá mér (Sibbu) og spila. Ef þið eigið skemmtileg spil skuluð þið endilega koma með þau með ykkur. Við erum í fríi í skólanum á föstudaginn svo það er aldeilis gráupplagt fyrir ykkur að fá ykkur einn eða tvo öl með spilamennskunni :-)

Vonandi geta allir verið með okkur þennan dag og haft ótrúlega gaman :-)
26. janúar 2009 klukkan 17:17
Iđjurnar á 2.ári
8 athugasemdir
04desember

Prófin bara alveg ađ verđa búin :-)

Ótrúlegt alveg, bara tvö próf eftir og eftir viku verðum við komin í jólafrí !!!!! Ætlum við ekki öll að djamma rosalega þegar við erum búin ???? Ég skal lofa að fara ekki heim fyrir miðnætti, jafnvel vera bara alveg fram á nótt :-)
Hvernig er ykkur annars búið að ganga í próflestri og prófunum sem eru búin. Vona að öllum hafi bara gengið vel. Nú annars eru janúarprófin til að redda þeim sem ekki gekk nógu vel ;-) Hahaha. Smá einkahúmor hérna :-)

Annars er ég orðin geggjað leið á að bíða eftir einkunn í iðjunni og félagsfræðiverkefninu. Skil ekki hvað þessir kennarar eru að spá !!!

En verum hress og ekkert stress.....Sibba sem verður þekktur djammari eftir próflokadjammið !!!
04. desember 2008 klukkan 19:17
Iđjurnar á 2.ári
1 athugasemd
07október

Iđjudjamm

IÐJUÞJÁLFANEMAR!!

Á föstudaginn 10. október 2008 ætlar 3.árið að halda hið árlega iðjudjamm og þér er boðið. Brosandi

Þetta er þemapartý og er þemað í ár NEON litaþema!!
Sem þýðir að 1.árið mætir í grænu neon "átfitti", 2. árið í bleiku, og 3. árið í gulu.

Partýið verður haldið á Sólborg í stofu L 201 og byrjar fjörið kl. 21:30

p.s. smá veitingar verða í boði fyrir þá sem mæta.

--------------------------------------------------------------------------------------------------

Koma svo kæru 2.árs iðjur, allir að mæta.  


Kv. María 
07. október 2008 klukkan 22:02
Iđjurnar á 2.ári
3 athugasemdir
30september

Meira um sprellmótiđ:)

Jæja smá punktar um niðurstöður fundarins í dag:

·         Mæting í partýið, íbúð 705, um leið og þið eruð búin að taka ykkur til fyrir kvöldið og í síðasta lagi klukkan 7.

·         Við ætlum að pannta pítsur á Bryggjunni og var ákveðið að hafa fjórar pítsur. Ef það er eitthvað sem þið viljið breyta við þetta þá helst að fá að vita það sem fyrst því að ég ætla að pannta þetta senmma;)

o   Pítsa eitt: pepparoni, skinnka og hakk

o   Pítsa tvö: kjúkklingur, rjómaostur, pepparoni á einn helming og sveppi á hinn helminginn.

o   Pítsa þrjú: paprika, laukur og sveppir.

o   Pítsa fjögur: skinka, ananas og pepparoni á helminginn.

·         Vala og Sibba verða allavega á bíl þannig að önnur hvor þeirra gæti farið og náð í pítsuna.

·         Ester talaði um að redda kannski einhverju að drekka fyrir okkur ef það væri hægt sem er frábært!

·         Væri gott að fá að vita hverjir ætla að drekka og hverjir ekki.......er reyndar nokkuð mikilvægt......þar sem það fellst í skipulagi kvöldsins:)

·         Minna fólk á að koma með einhverjar skemmtilegar plötur ef þið eigið, annars erum við líka með eitthvað :)

·         Málið er svo bara að skemmta sér rosalega val, hlusta á plötur, syngja, dansa, spila og tala saman. Ef einhver vill fara í sing star eða eitthvað þannig þá megið þið alveg redda því!! :)

·         Allir eiga að koma með góða skapið með sér og eins gott að það mæti allir!!! Treysti á ykkur í fyrsta góða partý vetrarins.

Ég ætlast til þess að allir kommenti á þetta blogg....sama hvort þeim líst vel á þetta eða ekkiJ hehe allir verða að segja sína skoðun!!!!

-Erna

30. september 2008 klukkan 18:01
Iđjurnar á 2.ári
8 athugasemdir
29september

Sprellmót hugleiđingar.

Jább fólk...þið lásuð rétt...sprellmót:)

Nú er um að gera að fara að plana þetta aðeins. Búið er að ákvðea að partýið verði hérna í Tröllagilinu hjá Ernu og Völu.

Spurningin sem þið þurfið að velta fyrir ykkur fyrir morgundaginn er þessi:
  • Klukkan hvað er mæting í partýið?
  • Hvað ætlum við að borða, ætlum við að pannta eða ætlum við að elda?
  • Ef við ætlum að pannta þarf að ákveða hvað og pannta aðeins fyrr en venjulega svo við  fáum matinn á réttum tíma og svona.
  • Ef við ætlum að elda þarf að kaupa í matinn og ákveða havð á að elda.
  • Einnig þurfum við Vala og Erna að fá að vita hvað það eru margir sem ætla að drekka. 

En það er alveg málið að halda smá svona skipulagsfund á morgun og svona aðeins að plana þetta til að hafa smá skipulag á þessu.....:)

Svo er náttúrulega mission að það séu allir í góða skapinu allann daginn og skemmti sér sjúklega vel!!
En já það koma frekari upplýsingar hingað þegar við erum búin að plana þetta:)

-Erna
29. september 2008 klukkan 20:50
Iđjurnar á 2.ári
2 athugasemdir
15september

Góđ byrjun á góđu skólaári??

Jæja var orðin leið á því að skólinn væri alltaf alveg að byrja því hann er sko BYRJAÐUR :)

En við erum s.s búin að fara í bæjarferð þar sem við fengum að upplifa hvernig það er að vera með einhverja skerðingu. Ég, Vala, Sibba, Valgý og Rannveig vorum í fyrsta hópnum og held ég bara að okkur hafi þótt þetta mjög fræðandi og skemmtilegt þrátt fyrir grenjandi rigningu! Allavega fannst mér rosalega merkilegt að fá að upplifa þetta.

Þegar allir voru búnir að fá sitt hlutverk var haldið af stað niðrí bæ. Það átti að senda okkur í strætó en vegna rigningu þá fengum við að fara á bíl, sem betur fer!!

Það sem var í boði var: blindur, lamaður fyrir neðan mitti, 80 ára og í göngugrind, með skert sjónskyn og skert snertiskyn í vinstri hendi eða þá að vera aðstoðarmaður.

Við fórum á nokkra staði eins og til dæmis inní pósthúsið, í Zik Zak búðina, inní tryggingarstofnun, áfengisverslunina og svo loks inná bláu könnuna!

Það var rosa spes viðmót sem við fengum. Flestir horfðu á okkur eins og við værum geimverur og svo voru líka konurnar inní Zik Zak ekkert smá spenntar að fá að vita hvað við værum að gera og hvernig tilfinnign þetta væri, voru mjög áhugasamar um þetta. En besta var þó að sjá svipin á fólki þegar við vorum að skipta um hlutverk og stóðum kannski uppúr hjólastólnum og fórum í það að verða blindar eða bara í aðstoðarhlutverkið.

Andra til mikillrar gleði sá hann okkur niðrí bæ og keyrði auka hring til þess að geta hlegið af okkur í rigningunni! Sáum líka Maríu og hún sá okkur varla hehe þurftum að kalla á hana svo hún sæi okkur;)

En þetta var rosalega gaman og það var mikið hlegið og marga myndir teknar...þær kannski segja ykkur aðeins meira hvernig þetta var;) Ein mynd segir 1000 orð hehe:)

Þið bara skoðið að skemmtið ykkur!

En svo er það nýja á dagskrá.......málið er að ég og Vala erum komnar með þessar SNILLDAR græur með kasettutæki og plötuspilara. Hvernig væri það að fara að finna gömlu plöturnar sínar sem og kasetturnar, dusta rykið af krumpugallanum, finna til gömlu góðu „52“ spilin og eiga bilað góðan kvöldstundarhitting saman??

Endilega komið með komment hvernig ykkur líst á þetta!! Um að gera að reyna að hrista okkur aðeins saman í tilefni þess að það er komin ný skvísa í hópinn :)

 - Erna

15. september 2008 klukkan 22:55
Iđjurnar á 2.ári
7 athugasemdir

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Könnun

Erum viđ besti iđjuhópur ever eđa hvađ ???

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...